Stjórnendafélag Suðurnesja á orlofshús að Öldubyggð 5, sem er í landi Svínavatns í
Grímsnesi. Grunnflötur hússins er 91 fermetri. Í húsinu eru tvö hjónaherbergi og eitt
herbergi með kojum, svefnloft með tveimur stórum rúmum, stofa, eldhús, bað, auk
útihúss. Svefnpláss er fyrir allt að 10 manns.

Orlofahúsinu fylgir Sjónvarp Símans Premíum og frítt þráðlaust Internet. Á staðnum
er gasgrill, barnastóll, barnarúm, uppþvottavél, þvottavél, Snjall-sjónvarp, útvarp,
borðbúnaður fyrir 10 manns, kaffivél, eldavél, ofn, örbylgjuofn, ísskápur og brauðrist.
Á svefnlofti er einnig sófi og sjónvarp. Í útihúsi er geymsla fyrir grill og garðhúsgögn.
Auk þess er mjög góð verönd með garðhúsgögnum við húsið og heitur pottur.

Nánasta umhverfi býður upp á mikla fjölbreytni, verslun og sundlaug að Minni Borg
sem er ca. 5 km fjarlægð. Golfvöllur er í nágrenni í landi Minni Borgar.

Athugið!
Dvalargestir koma sjálfir með borðtuskur og viskustykki og sængurfatnað, en sængur fyrir 7 manns eru á staðnum. Óheimilt er að vera með hunda eða önnur gæludýr í húsinu.

Bóka Öldubyggð

This slideshow requires JavaScript.